Létt í lundu? Jubb lífið er bara að gerast.
Og ég að verða fullorðins. Ég meina, hversu fullorðins er að kaupa sér eitt stykki íbúð?
Ég fann eina í neðra breiðholti á sanngjörnum prís, tæpir 70 fm, björt og rúmgóð á jarðhæð ( svo pabbi kallinn geti rúllað í heimsókn)
Eftir tilboða og gagntilboða stríð fékk ég hana, reyndar 200.000 dýrara en ég hefði viljað en hvað er það þegar til lengri tíma er litið?
Þetta er íbúð sem ég fíla og það er það sem máli skiptir.
Veit ekki alveg hvernig fer með Tiki minn þar sem ég þarf að fara vinna miklu meira, þarf að velja milli þess að selja hann, koma honum í fóstur eða kaupa handa honum félaga.
Mér er bara farið að þykja óskaplega vænt um þetta fiður frík, hann er svo mikill karakter og kelirófa, veit fátt betra en að láta kjassa sig og knúsa.
Hann hefur líka tekið þónokkrum framförum í blístri og kann nokkra lagstúfa. Skemmtilegast finnst honum þó að koma með mér í bíltúr og helst í heimsókn einhvert annað.. hann er eins og lítill hundur!
Ég er samt hætt að taka hann í verslanir eftir að hann hóf raust sína af fullum krafti í heiðrúnu og söng miklar aríur í röðinni á háannartíma. Keiz varð rauð eins og tómatur og reyndi að þagga niðrí stórsöngvaranum með litlum árangri og gáfu sam-kúnnar mér illt auga líkt og ég væri með óþekkt barn í eftirdragi......
Tiki var ekkrt óþekkur, hann var bara var bara að syngja af kæti!
Ég syng líka af kæti þessa dagana , eða meira rappa ;)
Orðin ástfangin af lífinu á nýjan leik, ástfangin af Tiki, ástfangin af nýju íbúðinni minni og síðast en ekki síst ástfangin af kærastanum mínum
Reyndar þoli ég ekki vinnuna mína, finnst hún hunddrullluleiðinleg, en get heldur ekki horft framhjá kostum hennar, og þess vegna lafi ég einhvað lengur.
Það gæti orðið léttbærara ef vodafone hotspottinn hérna í kringlunni virkaði, þá gæti ég verið einhvað að slóðast online, þetta hlýtur að detta í gagnið fljótlega.....
Ég hef enga list á að ræða þjóðmálin né heimsmálin, dabba kóng eða bússa fjöldamorðingja ... það gerir mig bara vonda.
Svo mikil neikvæðni og væl þarna úti.
Nú er sumar gleðjumst gumar, gaman er í dag!
Er þæggi?
Að lokum vil ég senda honum óla mínum ástarkveðjur til baunalands þar sem hann hefur hreiðrað um sig í miðbæ kóngsins köben.
Wish i was there with you baby ;)
Óli er með áhugaverða síðu sem þú getur skoðað hér
hér
Verið sæl að sinni rúsíunurazzgötin ykkar